Selfoss deild Jakkafatajóga

Nú hefur Jakkafatajóga á Selfossi verið starfrækt í rúm tvö ár, en nýlega tók hún Steinunn Kristín við sem kennari þar. SelfossHún tekur að sér kennslu á Selfossi og nágrenni, en auk þess að sinna Jakkafatajóga þá kennir hún hefðbundna jógatíma í Jógablóminu sem hún rekur ásamt fleiri jógakennurum.

Selfoss kemur fyrst inn á kortið

Selfoss var fyrsta bæjarfélagið utan Reykjavíkur þar sem var boðið upp á Jakkafatajóga. Það var því raun-eftirspurn frá fyrirtækjum, sem gerði það að verkum að við ákvaðum að eðlilegt væri að opna útibú frá Jakkafatajóga þar.

Hvað er Jakkafatajóga

Í Jakkafatajóga tímum kemur kennarinn til ykkar beint á vinnustaðinn og leiðir stuttan jógatíma. Það eina sem til þarf er gott gólfpláss, en hver iðkandi þarf olnbogarými til að framkvæma æfingarnar. Engrar sérstakrar kunnáttu er þörf til að stunda þessa tíma. Nálgunin er fyrst og fremst praktísk. Alltaf er einblínt á æfingar og hreyfingar sem losa um spennu á álagssvæðum. Þeir sem sitja mikið og/eða gera einhæfar hreyfingar yfir daginn njóta góðs af æfingunum og má segja að æfingarnar séu sérsniðnar að þeim hópi. Æfingarnar nýtast hins vegar öllum þeim sem gera þær því alltaf er verið að auka blóðflæði og losa um spennu.

Selfoss stækkar

Nú eftir að Steinunn tók við á Selfossi höfum við getað fjölgað lausum tímum sem hægt er að bóka  fyrir fyrirtækjahópa. Núna getur þú meira að segja bókað tíma fyrir fyrirtækjahópinn þinn hér á vefnum! Kíktu á lausu tímana hennar Steinunnar hérna:

Jakkafatajóga: Selfoss

SelfossUm Steinunni

Steinunn hefur yfirgripsmikla þekkingu og reynslu í jóga. Húnhellti sér út í fræðin á góðæristímum 2007 og þá var ekki aftur snúið.  Það sem henni finnst mest heillandi er hversu gott er að nota jógafræðin sem tæki til að dýpa andlegan þroska og lifa daglegu lífi.Steinunn ákvað að venda sínu kvæði i kross árið 2007 og hella sér út í jógakennaranám. Hún skellti sér í 200 tíma Hatha jógakennaranám sem hún nam hjá Ásmundi Gunnlaugssyni. 2015 fór hún svo í meira nám í jóga hjá Kamini Desai frá Amrit Yoga Institute í Florida. Þá lærði Steinunn Jóga Nidra en þessi hluti fræðanna heilluðu hana mjög mikið. Í framhaldi af þessu námi hóf Steinunn sjálf að kenna jóga og leiða jógatíma. Helstu áherslur í kennslu hjá henni eru að hjálpa fólki að upplifa kyrrð og ná betri ró inn í lífið. Meira um Steinunni hérna.

Þú getur bókað tíma strax í dag Jakkafatajóga: Selfoss

Ef þú hefur fyrirspurnir geturðu haft samband hér, eða sent tölvupóst á Steinunni.

Eygló fór sjálf að stunda jóga árið 2008 og má segja að hún hafi kolfallið fyrir áhrifunum sem iðkunin hafði á hana. Strax í janúar 2009 hóf hún svo jógakennaranám hjá Guðjóni Bergmann með það að markmiði að dýpka eigin iðkun. Þó ætlunin hafi upphaflega ekki verið að leggja stund á jógakennslu í kjölfarið, þá hóf hún að kenna reglulega tíma snemma sama ár og með tímanum fór hún að kenna sína eigin tíma undir merkjum Yoga með Eygló. Eygló hefur því stundað jógakennslu frá 2009. Árið 2013 stofnaði hún svo Jakkafatajóga með það að markmiði að koma hreyfingu inn í daglega dagskrá almennings og þannig útrýma kyrrsetukvillum.