Banana- og eggjabollur jógans

Banana

Nesti á milli jógatíma

Ég set þessa uppskrift hingað inn í tilefni bolludags, enda eru þetta nokkurskonar bollur eða bollakökur. Þessar bollur eiga hins vegar alltaf við, allt árið og duga vel í morgunmat, millimál eða eftirrétt. Þær henta gríðarlega vel sem nesti á milli jógatíma hjá mér.
Mæli eindregið með þessum fyrir alla aldurshópa.

Banana- og eggjamúffur:

Undirbúningstími: 5 mín


Innihald:

  1. 1 banani 
  2. 2 egg
  3. 1-2msk kanill (má sleppa)

 

Aðferð:

  1. hræra eggin saman þartil létt
  2. stappa bananann
  3.  blanda banananum samanvið eggin
  4. hella í muffinsform (sílíkon eða slíkt, ekki pappa). Passar vel í 6 form
  5. baka ca 15 mín

 

Njótið vel!