Eygló Egilsdóttir

Teymið

Eygló kennir tíma á Höfuðborgarsvæðinu.
Allar nánari upplýsingar eða bókanir, sendið tölvupóst á info@jakkafatajoga.is.

Eygló hefur tekið saman lista yfir bækur sem hafa í gegnum lífið haft mikil áhrif á hana og hér getur þú fundið listann: Bók sem breytti lífi mínu

Eygló kynntist jóga fyrst í æsku í gegnum móður sína sem stóð fyrir því að fá þekkta íslenska jógakennara til að koma og halda námskeið úti á landi þar sem fjölskyldan bjó.

Og þá var ekki aftur snúið…

Það var þó ekki fyrr en sumarið 2008 sem Eygló fór sjálf að stunda jóga og má segja að hún hafi kolfallið fyrir áhrifunum sem iðkunin hafði á hana. Strax í janúar 2009 hóf hún svo jógakennaranám hjá Guðjóni Bergmann með það að markmiði að dýpka eigin iðkun. Þó ætlunin hafi upphaflega ekki verið að leggja stund á jógakennslu í kjölfarið, þá hóf hún að kenna reglulega tíma snemma sama ár og með tímanum fór hún að kenna sína eigin tíma undir merkjum Yoga með Eygló. 

Jakkafatajóga verður til…

Eygló hefur því stundað jógakennslu frá 2009. Árið 2013 stofnaði hún svo Jakkafatajóga með það að markmiði að koma hreyfingu inn í daglega dagskrá almennings og þannig útrýma kyrrsetukvillum.

Stofnandi og meðeigandi Metabolic Reykjavík, sem var opnað 7. janúar 2019.
Stofnandi og eigandi Jakkafatajóga á Íslandi, kennir tíma á höfuðborgasvæðinu.
Stofnandi og eigandi Yoga með Eygló: Thai yoga massage og Hatha jógatímar

Eygló lærði…

2012 ÍAK einkaþjálfari frá Íþróttaakademíu Keilis
2009 Jógakennari frá Guðjóni Bergmann
2006 Viðskiptafræðingur BSc frá Háskóla Íslands

Stjórnarmeðlimur Jógakennarafélags Íslands 2012-2014

Sjálfstætt starfandi einkaþjálfari frá 2012
Sjálfstætt starfandi jógakennari frá 2009

Ýmis námskeið í þjálfun

2014 Hraðaþjálfun hjá Ian Jeffries á vegum Keilis
2013 Training For Warriors level 1 og 2 hjá Martin Rooney
2013 Hraðaþjálfun hjá Martin Rooney
2012 REHAB traner essentials og master á vegum Kine Academy

Ýmis námskeið í jóga

2014 Jóga fyrir börn, námskeið á vegum JKFÍ, kennari Eva Þorgeirsdóttir
2012 Stöðuleiðréttingar (Yoga Shala, Reykjavík)
2011 Thai yoga massage / jóganudd (Chang Mai, Thailandi)