Sigrún Haraldsdóttir

Teymið

Sigrún kennir tíma í Reykjavík, smelltu á hnappinn til að sjá lausa tíma Lausir tímar

Sigrún kynntist fyrst jóga árið 2008 eftir að hafa lent í meiðslum á hálsi. Eftir að hafa verið á fullu í íþróttum og ræktinni frá unga aldri fann hún nýja leið til að rækta líkamann. Í jógaiðkuninni fann hún í fyrsta skiptið vellíðan í bæði líkama og sál. Hún stundaði jóga næstum upp á dag í þrjú ár, ákvað þá að tímabært væri að læra nánar um hvað snýr upp og niður í líkama okkar.

Eftir að hafa klárað ÍAK-einkaþjálfarann, nám í jógafræðum, ógrynni af námskeiðum og fyrirlestrum þekktra færðimanna- og kvenna um heilsu, þá kynntist hún  Roll Model Method aðferðinni og hóf að hanna Happy Hips æfingakerfið. Tímarnir eru sambland af því besta úr jóga og losun á spennu í bandvef með sérstökum boltum.  Nú rúllar hún sér, sem og landanum í form.

Stofnandi og eigandi Happy Hips, kennir tíma í Reykjavík.
Stofnandi og eigandi Spörtu Heilsurækt
Stofnandi, hönnuður og eigandi Happy Hips

2016 The Roll Model Method, Teacher Training
2012 FoamFlex kennararéttindi
2012 Jógakennari frá Amarayoga
2011 ÍAK einkaþjálfari frá Íþróttaakademíu Keilis
1998 Fjölmiðlafræðingur,  BSc frá San Diego State University

 

Ýmis námskeið frá 2012 í þjálfun og jóga m.a.:

2017 The Roll Model Method, Ball
2016 The Roll Model Method, The Science of Rolling
2016 Yoga TuneUp, Shoulder Immersion
2016 Yoga TuneUp, Breathe & Bliss Immersion
2014 Jóga fyrir börn, námskeið á vegum JKFÍ, kennari Eva Þorgeirsdóttir
2013 Training For Warriors level 1 hjá Martin Rooney
2013 Hraðaþjálfun hjá Martin Rooney

Einkaþjálfari og Metabolic þjálfari í Spörtu frá 2013
Metabolic þjálfari Álftanesi 2011-2013
Hot Yoga kennari Hress 2011
Hot Yoga kennari Sporthúsinu 2009-2011

Allar nánari upplýsingar um Sigrúnu og Happy Hips má finna hér: