Skilmálar

Nafn: Prosum ehf. 

heimilisfang:  Pósthólf 10042
símanúmer: 6912258
netfang: info@jakkafatajoga.is

 

Almennir skilmálar

Prosum ehf. áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust. Áskilinn er réttur til að staðfesta pantanir símleiðis.

 

Afhending vöru 

Allar pantanir eru afgreiddar næsta virka dag eftir pöntun. Sé varan ekki til á lager mun starfsmaður hafa samband og tilkynna um áætlaðan afhendingartíma vörunnar. Er öllum pöntunum dreift af Íslandspósti gilda afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar Íslandspósts um afhendingu vörunnar. Nafn fyrirtækis. ber samkvæmt þessu enga ábyrgð á týndum sendingum eða tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi. Ef að vara týnist í pósti eða verður fyrir tjóni frá því að að hún er send frá Nafn fyrirtækis til viðkomandi er tjónið á ábyrgð kaupanda. 

 

Verð á vöru og sendingakostnaður 

Öll verð í vefverslun eru með inniföldum virðisaukaskatti þar sem það á við, öll verð eru birt með fyrirvara um innsláttarvillur, prentvillur og myndvillur. Sendingakostnaður bætist síðan við áður en greiðsla fer fram. Við sendum allar vörur með Íslandspósti á næsta pósthús. Sendingakostnaður er Kr. 350. Netverð gildir eingöngu þegar vara er versluð í gegnum netverslun Prosum ehf. ekki á öðrum sölustöðum Prosum ehf.

 

Að skipta og skila vöru 

Veittur er 14 daga skilaréttur við kaup á vöru gegn því að framvísað sé sölureikningi sem sýnir með fullnægjandi hætti hvenær varan var keypt. Varan þarf að vera ónotuð, í fullkomnu lagi og í sínum upprunalegu óskemmdu umbúðum þegar henni er skilað. Ef vara er innsigluð má ekki rjúfa innsiglið. Við skil á vöru er miðað við upprunalegt verð hennar, nema viðkomandi vara sé á útsölu eða á sértilboði við vöruskil. Þá er miðað við verð vörunnar þann dag sem henni er skilað. Ef kaupandi vill ekki skipta vörunni fyrir aðra vöru verður gefin út inneignarnóta eftir að varan er móttekin. Flutnings- og póstburðargjöld eru ekki endurgreidd. 

 

Gölluð vara 

Sé vara gölluð er viðskiptavinum boðin ný vara í staðinn og greiðum við allan sendingakostnað sem um ræðir. Eða endurgreiðum ef þess er krafist. Að öðru leiti vísast til laga um húsgöngu og fjarsölusamninga nr.46/2000 og laga um neytendakaup.

 

Trúnaður (Öryggisskilmálar) 

Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar upplýsingar sem hann gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki undir neinum kringumstæðum afhentar þriðja aðila.

 

Lög og varnarþing 

Samningur þessi er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir Héraðsdómi Reykjavikur.

 

Skilmálar Prosum ehf. um notkun á vafrakökum („cookies“)
1. Hvað eru vafrakökur?
Vafrakökur eru agnarsmáar textaskrár sem eru geymdir í vafraranum þínum. Vafrakökur eru notaðar í margvíslegum tilgangi, þar á meðal til þess að bæta virkni vefsíðna, til greiningar á notkun vefsíðna og til að beina auglýsingum til ákveðinna hópa eða einstaklinga. Vafrakökur geta innihaldið texta, númer eða upplýsingar eins og dagsetningar, en þar eru engar persónuupplýsingar um notendur geymdar.

  1. Notkun Prosum ehf. á kökum
    Með því að samþykkja skilmála Prosum ehf. um notkun á vafrakökum er Prosum ehf. m.a. veitt heimild til þess að:

bera kennsl á notendur sem hafa komið áður á vefinn og sníða leit og þjónustu við gestina til samræmis við auðkenninguna,
að gera notendum auðveldara að vafra um vefsvæðið, til dæmis með því að muna eftir fyrri aðgerðum,
að þróa og bæta þjónustu vefsvæðisins með því að fá innsýn í notkun hennar,
að birta notendum auglýsingar.
Prosum ehf. notar einnig þjónustu frá þriðja aðila til að greina umferð um vefinn, mæla virkni auglýsinga og til að birta gestum sérsniðnar auglýsingar. Til dæmis má nefna Google Analytics frá Google og Facebook Pixel frá Facebook. Analytics og Pixel safna upplýsingum nafnlaust og gefa skýrslur um þróun á vefsvæðum án þess að greint sé frá stökum notendum eða persónuupplýsingum. Google Analytics og Facebook Pixels notar sínar eigin kökur til að fylgjast með samskiptum gesta við vefsvæði. Á grundvelli þess áskilur Prosum ehf. sér rétt til að birta notendum auglýsingar í gegnum endurmarkaðssetningarkerfi þessara þriðju aðila.

  1. Geymslutími
    Kökur frá Prosum ehf. eru geymdar í allt að 24 mánuði frá því að notandi heimsækir vefsvæði Prosum ehf. .
  2. Slökkva á notkun á kökum
    Notendur geta, og er ávallt heimilt að stilla vafrann sinn þannig að notkun á kökum verður stöðvuð fyrir þann vafra, þannig að þær vistast ekki eða vefvafrinn biður um leyfi notenda fyrst. Slíkar breytingar geta dregið úr aðgengi að tilteknum síðum á vefsvæðinu eða vefsvæðinu í heild sinni og getur haft neikvæð áhrif á heildarvirkni.
    Leiðbeiningar um hvernig megi slökkva á kökum eða breyta stillingum um vafrakökur má finna á vefsíðu þíns vafra eða www.allaboutcookies.org.
  3. Meðferð Prosum ehf. á persónuupplýsingum
    Persónuupplýsingar sem kunna að að verða til við notkun á vafrakökum verða meðhöndlaðar og unnið með þær í samræmi við ákvæði laga nr. 77/2000 um persónuververnd og meðferð persónuupplýsinga. Prosum ehf. lýsir því yfir að ekki verði unnið með slíkar upplýsingar í öðrum tilgangi en að ofan greinir nema með yfirlýstu samþykki og þá verða upplýsingarnar ekki varðveittar lengur en þörf krefur miðað við tilgang vinnslu.

Persónuupplýsingar verða ekki afhentar þriðja aðila nema lög kveði á um annað.

 

Aðrir skilmálar

Kaup á vefnámskeiðum, vörum eða upptökum hjá Prosum ehf. er háð eftirfarandi skilmálum. Kaupendur eru hvattir til þess að skoða skilmálana vandlega áður en gengið er frá kaupum.

Með kaupum á vörum á vef Jakkafatajóga samþykkir þú að fría Eygló Egilsdóttur, Prosum ehf. og www.jakkafatajoga.is allri ábyrgð ef þú skyldir slasa þig við æfingar.

Prosum ehf. ber ekki ábyrgð á neinum meiðslum sem gætu gerst á meðan á æfingum stendur. Allar æfingar eru útskýrðar vel í vefnámskeiðum og bók og innleiðing í hverja æfingu er í ítarlegum skrefum. Sért þú ekki viss um hvort eða hvernig þú eigir að framkvæma einhverja æfingu, skaltu hiklaust senda fyrirspurn á netfangið info@jakkafatajoga.is og bíða ítarlegri leiðbeininga. 

Það er alltaf mikilvægt að þú hlustir á líkamann og farir aldrei yfir sársaukamörk í æfingum. 

Ef þú ert hefur meiðslasögu eða glímir við önnur læknisfræðileg vandamál skalt þú ráðfæra þig við lækni til að tryggja að þú getir fylgt æfingunum á námskeiðum.

Með því að greiða fyrir námskeið eða vöru á vef www.jakkafatajoga.is ábyrgist þú að þú sért lögráða eða að þú hafir leyfi frá forráðamanni til þess að framkvæma kaup og sért um leið að samþykkja þessa skilmála.

Prosum ehf. tryggir ekki árangur af námskeiðum eða upptökum. Árangur tekur tíma og fer eftir því hversu vel/oft þú fylgir plani eða hversu vel/oft þú gefur þér tíma, og yfir hve langt tímabil. 

Persónuupplýsingar (nafn, tölvupóstfang, heimilisfang og sími) eru geymdar á innri vef www.jakkafatajoga.is. Persónuupplýsingar eru fengnar í þeim tilgangi að afgreiða þjónustu eða vöru. Þegar þú kaupir vöru eða þjónustu á www.jakkafatajoga.is samþykkir þú að deila persónuupplýsingum með Borgun í þeim tilgangi að ganga frá greiðslunni. 

Þegar þú skráir þig á námskeið samþykkir þú einnigskráningu á póstlista til þess að geta fengið æfingu dagsins senda í pósthólfið. 

Þegar vara er keypt samþykkir þú að deila persónuupplýsingum með Póstinum í þeim tilgangi að afgreiða vöruna. 

Óskir þú eftir að eyða persónuuplýsingum vinsamlegast sendu beiðni þess efnis á info@jakkafatajoga.is.

 

Höfundaréttur

Eygló Egilsdóttir er höfundur alls efnis sem birtist á vef www.jakkafatajoga.is. Prosum ehf. er hönnuður og eigandi allra þeirra vara sem eru til sölu í vefverslun á vef www.jakkafatajoga.is

Höfundaréttur er áskilinn á öllu efni sem vefurinn www.jakkafatajoga.is hefur að geyma. Hvert pláss á vefnámskeiðum, hver upptaka er ætlað sölu til einstaklinga. Það er ætlað til persónulegra nota og má ekki undir neinum kringumstæðum deila til annarra til notkunar. Nema annað sé tekið fram eða með leyfi. Þetta á ekki við um vörur, vefnámskeið, vefaðganga sem eru sérstaklega ætlaðar fyrirtækjahópum.