Happy Hips er einstakt kerfi þar sem unnið er markvisst að liðkun og opnun liðamóta með jógastöðum og nuddboltum.
Almennt er unnið með alla vöðva líkamans, en áhersla lögð á losun spennu í vöðvum við mjaðmalið. Með losun trigger punkta losnar um tog eða spennu í bandvef.
Með því tvinna saman jóga og bandvefslosun er hægt að bæta liðleikann mjög mikið. Almenn hreyfifærni eykst, ásamt blóðflæði og almenn líkamleg líðan batnar.
Trigger-punktar eru spennupunktar sem safnast fyrir í vöðvum. Þeir geta sent frá sér leiðniverki eða doða til nær- eða fjærliggjandi svæða. Við boltanuddið hitnar líkaminn og allt flæði eykst og bandvefurinn bæði mýkist og lengist. Allt þetta leiðir til bættrar hreyfigetu og minni verkja á spennusvæðum.
- ATH að gott veggpláss er nauðsynlegt fyrir tímann, hver og einn iðkandi þarf að komast upp að vegg með boltann.
Sigrún, boltakennarinn okkar kemur til fyrirtækis og stjórnar æfingum í 15-20 mínútur –smellpassar alveg í kaffitímann. Það hefur aldrei verið eins auðvelt að huga að heilsunni því hvorki þarf að skipta um föt né fara úr húsi.
Happy hips og Jakkafatajóga í samstarfi
Samstarf Happy Hips og Jakkafatajóga. Í tímum Happy Hips eru notaðir sérstakir boltar við að nudda spennu og vöðvaþreytu úr líkamanum. Búið er að þróa sérstaka tækni sem er einstaklega áhrifarík og einföld í framkvæmd fyrir hvern sem er.
Viltu fá okkur í heimsókn?
Sendu okkur skilaboð hér: Hafðu samband eða tölvupóst: info@jakkafatajoga.is / sigrun@happyhips.is
Ítarlegri upplýsingar um Boltatíma Happy Hips má finna hér: www.happyhips.is