Thai nudd – „Jóga fyrir hvíta lata manninn“
Thai nudd, eða einstaklingsmeðferð í jóga er eitthvað sem mér hefur alltaf þótt spennandi og skemmtilegt viðfangsefni. Þess vegna fór ég í námsferð til Thailands árið 2011 og lærði það sem kallast Jóganudd eða Thai Yoga Massage.
Sá sem kaupir sér svona tíma hefur það eina hlutverk að slaka á, líkt og í nuddtíma, en jógakennarinn sér um að færa viðkomandi til, hreyfa hann inn í og út úr jógastöðum og teygja á honum í leiðinni.
Thai nuddið fyrir þá ríku…
Thailendingarnar sem ég kynntist, gerðu reyndar góðlátlegt grín að þessum einkatímum með því að kalla þá „jógatíma fyrir hvíta lata manninn“, því í þeirra heimkynnum voru það helst ríkir ferðamenn sem sóttu í þessa einkatíma.
Tilgangur þessara einkatíma er sá sami og með annarri jógaiðkun; að auka vellíðan og bæta heilsu. Með aðstoð jógakennarans og markvissri öndun er hægt að komast dýpra í teygjur en áður. Unnið er kerfisbundið með allan líkamann, ávallt með vellíðan viðtakandans í huga.
Nú hef ég opnað fyrir bókanir á svona tímum hjá mér, en ég er með aðstöðu í hlýlegu húsnæði Olíulindarinnar við Vegmúla 2 þar sem ég tek á móti fólki í einkatíma í jóga. Við notum stóra jógadýnu og höfum gott gólfpláss. Nóg af púðum og teppum til að aðstoða við slökun og gera upplifunina sem besta fyrir viðtakandann.
Allar upplýsingar og skráning: eyglo@jakkafatajoga.is
Eygló Egils
Jógakennari
ÍAK einkaþjálfari