Villi nudd og Jakkafatjóga
Villi nudd og Jakkafatajóga
Þegar við hjá Jakkafatajóga hófum samstarf við Villa nuddara fyrir tæpu ári, vissum við ekki alveg hvernig eftirspurnin eftir nuddi á vinnutíma yrði. En eftir nokkra mánuði af tilraunastarfsemi var niðurstaðan alveg skýr: eftirspurn og þörf á nuddi fyrir starfsmenn skrifstofufyrirtækja á vinnutíma er staðreynd.
Villi nudd
Villi hefur einstakan bakgrunn í þjálfun, heilsurækt og endurhæfingu og hefur starfað við það í fjölda ára. Að hans eigin sögn er hann í draumastarfinu og þess vegna er hann mjög fær í því sem hann gerir. Þó nuddtímarnir séu stuttir í mínútum talið, er Villi rétti maðurinn til að skila árangri í djúpvöðvanuddinu. Allir þeir sem glíma við langvarandi verki eða stífleika ættu að leita til Villa og fá bót á sínum meinum. Við gætum í raun og veru sagt að nudd hjá Villa sé góð endurhæfing eftir meiðsli, stífleika og verki. Lesa meira um Villa hérna.
Nudd og jóga sameinað
Með því að sameina Jakkafatajóga og nudd getum við aðstoðað fólk til betra lífs með bættri líðan. Í jógatímum má læra einfaldar en áhrifaríkar hreyfingar sem hægt er að gera á vinnutíma (eða hvenær sem er). Í nuddinu fæst extra aðstoð við að losa um spennu og bólgur sem hamla stoðkerfinu að vinna eins og það ætti að gera.
Vefbókanir
Nú er hægt að bóka Villa nudd með nokkrum smellum á vefsíðu okkar. Þú einfaldlega ferð inn á bókurvefinn og velur tíma fyrir starfsmannahópinn þinn. Bóka tíma í nuddi fyrir hóp
Við bjóðum einnig upp á tilboðspakka, þar sem hægt að kaupa saman tíma í Jakkafatajóga og nuddtíma . Tvennskonar tilboðspakkar eru í boði: 1 mánuður / 3 mánuðir.
Teygðu þig í átt að betri líðan með okkur