Brjóstbak – efri hluti baks
Brjóstbak
Brjóstbak er undir miklu álagi á degi hverjum, ekki síst vegna langvarandi setu og álags sem myndast bæði á axlarsvæði og mjóbaki.
Lesa meira um
>>axlir hérna<<
>>mjaðmir hérna<<
>>nára hérna<<
Vegna langvarandi setu og (yfirleitt) vöntun á styrk í bak- og kviðvöðvum getum við orðið hokin við langvarandi setu eða stöðu. Við getum jafnvel þróað með okkur smá kryppu. Við erum nú líklega flest tilbúin til að forðast kryppu, fyrir útlitið, en hvar á að byrja?
Styrkja og liðka
Brjóstbakið er nátengt axlarsvæðiu og vandamálunum sem við höfum þar. Mikil símanotkun, þar sem horft er niður í kjöltu, langtímum saman er tild æmis stór áhættuþáttur.
Brjóstbakið mótast af og er undir áhrifum af …
- ójafnvægi á hálsvöðvum
- stífir, stuttir brjóstvöðvar
- langir veikir bakvöðvar
- lítil virkni í vöðvum sem styðja við hrygg
- lítil virkni í kviðvöðvum
- ójanfnvægi í mjaðmagrind
Eins og með svo margt annað tengt líkamanum, þá er ekkert eitthvað eitt quick fix. Heldur þurfum við að sinna öllum líkamanum eitthvað pínulítið, helst daglega, til að kroppnum líði sem best.
Við byrjum á einhverju einföldu …
Nú er til dæmis líklegt að þú sitjir í stól. Byrjaðu á því að rétta úr þér.
- settu báðar iljar í gólf
- finndu fyrir setbeinunum á stólsessunni
- reyndu að lengja hrygginn
- horfðu beint fram
- togaðu herðablöðin örlítið saman og niður
Velkomin/n í nýju uppáhalds stöðuna þína!
Finnst þér erfitt að sitja svona? Þá skaltu ekki halda stöðunni lengi. Settu lítinn gulan post-it miða á tölvuna þína með einhverskonar merki (Óli Prik, X, hjarta… eða bara hvað sem er) sem minnir þig á að rétta svona úr þér. Reyndu að gera þetta amk einu sinni á klukkustund. Þú hefur gríðarlega góð áhrif á líkamann og axlir með þessu einu.
Hreyfing, hreyfing, hreyfing
Þetta bara verður ekki sagt nógu oft! Til þess að losa um spennu í brjóstbaki er nauðsynlegt að hreyfa svæðið og búa til blóðflæði. Það er helsta ástæðan fyrir þessu veseni í fyrsta lagi. Einföldu æfingarnar hérna koma þér ansi langt. Gerðu þær nú þegar, ég skora á þig!
Það er nefninlega svo oft þannig að við áttum okkur ekki á hversu mikilvægt eitthvað er, fyrr en við missum það. Hjálpum hvert öðru að halda í heilsuna.
Golfarasveiflan fyrir brjóstbak
- stattu líkt og þú sért að koma þér fyrir með golfkylfu á púttvelli
- mjaðmabil milli fóta
- hné mjúk
- hendur halda á ímyndaðri kylfu
- Innöndun: Hreyfðu bara hægri handlegginn inn í sveifluna
- togaðu hægra herðablað í átt að hrygg
- farðu eins langt og þú getur upp með hendina
- Útöndun: handleggurinn kemur til baka niður
- Endurtaktu fyrir vinstri hlið
- Endurtaktu 5-10x fyrir hvora hlið
Viltu meira?
Fylgdu Jakkafatajóga á Facebook, því á fimmtudaginn kl 10 verð ég með LIVE útsendingu frá skrifstofunni minni, þar sem ég fer í æfingu vikunnar. Tilvalið fyrir þig til að gera við skrifborðið, eða í eldhúsinu, eða hvar sem þú ert staddur/ stödd.
Útsending þessarar viku verður tileinkuð hreyfingum fyrir brjóstbak.
>>Finndu okkur á Facebook hérna<<
Þú getur einnig alltaf >>haft samband hér<< eða sent tölvupóst á eyglo@jakkafatajoga.is