Mjaðmirnar eru eins og sólin
Ef líkami okkar væri sólkerfi, þá væru mjaðmir okkar sólin. Svo mikilvægar eru þær og hafa áhrif á hvernig okkur líður í öllum líkamanum!
Það er því mjög mikilvægt að halda mjöðmum heilbrigðum, bæði með styrktar- og liðleikaæfingum. Best er að hafa gott jafnvægi af þessu hvoru tveggja.
Og við, sem sitjum meira en okkur er hollt (já, þú líka! Við sitjum vel flest fleiri stundir en er líkamanum gott) – þurfum alveg extra mikið að hugsa um þetta.
Ein teygja fyrir mjaðmir
Mjaðmir eru ekki bara stærstu liðamótin okkar, heldur líka þau stirðustu. Allar hreyfingar sem við gerum fyrir mjaðmasvæðið eru góðar og við ættum eiginlega alltaf að hreyfa mjaðmirnar eitthvað aðeins þegar við stöndum upp eftir langvarandi setu.
Í þessari viku ætlum við að teygja aðeins á nára.
Skref fyrir skref
Það ættu flestir að geta fundið einhverja teygju í þessari stöðu sem er lýst hér að neðan. Sumir finna mikla teygju framan á mjaðmir / nára á meðan aðrir þurfa að leita aðeins meira að teygjunni hjá sér. Reyndu að fylgja skrefunum hér fyrir neðan sem best. Athugaðu að þú ert ekkert endilega að gera æfinguna rangt þó að þú finnir enga teygju. Við erum öll misjöfn hvað varðar byggingu og lag í skrokknum.
1. Stattu upp
Jafnvel þó þú gerir ekkert meira, þá mun það eitt að standa upp gera góða hluti fyrir kroppinn og ekki síst mjaðmir. Hefur þú einhverja hugmynd um hvað þú situr í margar klst á dag? Ég hvet þig til að telja saman klukkustundirnar sem þú situr – það mun örugglega koma þér á óvart hvað þetta er raunverulega langur tími!
3. Stígðu fram með hægri fæti
Veldu annaðhvort:
- lítið eða stórt skref
- aftari hæll í gólfi eða ekki
Svo skaltu
- spenna rass og þrýsta mjöðmum fram
- horfa upp á við og þrýsta brjóstkassa fram í leiðinni
Stundum þarf að leita betur að teygjunni:
- teygja vinstri hendi upp í átt að lofti
- vera innskeif/ur á vinstri fæti
- Snúa upp á búk til hægri – horfa til hægri
- spenna greipar fyrir aftan bak og þrýsta brjóstkassa aðeins fram/upp
4. Nárateygja
Haltu teygjunni í 2-5 andardrætti og skiptu svo um hlið.
Reyndu að hafa hina öxlina slaka og kannski er gott að „dúa“ aðeins inn og útúr teygjunni.
Næsta skref
Fylgdu okkur á FB og gerðu þessa æfingu og fleiri í beinni útsendingu með mér á fimmtudaginn kl 10:00
>>Facebook síða Jakkafatajóga<<