30 daga jógaáskorun
30 daga jógaáskorun
Er loksins komin í loftið! Þessi jógaáskorun hefur verið lengi ofarlega í huga og eitt þeirra verkefna sem hefur klárlega verið OF lengi á to-do listanum hjá mér. Ég býst við að ég hafi ekki sett þetta nógu ofarlega í forgangsröðunina fyrr en nú – meira um það efni á degi 11!
Smelltu á myndina!
Ég er búin að leggja hug og hjarta í þetta verkefni og vona að þú komir til með að njóta afrakstursins. Ég naut þess í botn að búa þetta til og kem pottþétt til með að búa til fleiri svona vefnámskeið í framtíðinni.
Innifalið í vefnámskeiðinu
- 30 einfaldar æfingar útskýrðar í máli, myndum og myndböndum
- Daglega orðsendingu frá mér í tölvupósti
- Ævi-aðgang að öllu efninu í gegnum vefinn
- Hægt er að hlaða öllu efninu niður:
- öllum myndböndum: fleiri en 30 myndbönd
- öllum skjölum: tæplega 70 bls af jógaútskýringum með myndum
- Follow up símtal við Eygló í lokin
Skráðu þig í jógaáskorun
Þetta er vefnámskeið sem mun aðstoða þig við að búa til góðar jógavenjur á 30 dögum. Engin þörf á sérstökum jógabúnaði eða fatnaði. Engin þörf á þekkingu á jóga. Fylgdu bara fyrirmælunum mínum með fyrsta kaffibolla dagsins og þú ert í góðum málum. Einfaldara verður það ekki!
Skráðu þig hérna: https://jakkafatajoga.teachable.com/
Sjáumst á námskeiðinu!
Kveðja, Eygló