Slökunarjóga á Selfossi

Slökunarjóga

Slökunarjógatímar hafa notið töluverðra vinsælda frá því þeir voru fyrst kynntir og nú mun Eygló leiða slíkan tíma í notalegu húsnæði hjá Yoga sálum á Selfossi.

Skráðu þig núna

Aldrei fleiri en 20 í salnum í tíma, þægilegur tími, rólegt andrúmsloft.

Bókaðu plássið þitt  hérna: Slökunarjóga | Selfossi

Hvar – hvenær – hvernig?

Dagur: 10. október
Tími: kl. 20:10-21:15
Staður: Yoga sálir, Eyrarvegi 38, 800 Selfoss
Verð: kr. 2.500

slökunarjóga

Uppbygging tímans er nokkurnveginn svona:

  • 25 mín mín af liðkandi og notalegum jógaæfingum
  • 10 mín öndunaræfingar
  • 25 mín slökun

Komdu í þægilegum fötum sem ekki hefta hreyfingar þínar og vertu tilbúin/n til að njóta þess að slaka á. Markmiðið er að allir fari endurnærðir heim eftir tímann.

slökunarjóga

Hvað gerist í slökunarjóga?

Við erum svo dugleg í að virkja, spenna og nota líkamann í daglegu lífið að það er orðin raunveruleg áskorun fyrir okkur að slaka á – án þess að sofna. Markmiðið með slökun er ekki endilega að sofna, en ef það gerist, þá er það allt í lagi. Það er GOTT að veita líkamanum það sem hann þarf.

Í þessum tíma er markmiðið að hreyfa sig mjúklega, hlusta á líkamann og leyfa sér að sleppa taki á öllum öðrum verkefnum rétt á meðan. Á meðan slökuninni stendur gengur Eygló á milli allra í salnum og gefur hverjum og einum herðanudd sem dýpkar slökun og eykur vellíðan. Handtökin sem Eygló notar lærði hún í Thailandi. Lestu meira um Thai nudd hérna.

Skráðu þig núna

Það eru 20 dýnur í salnum, smelltu hér og tryggðu þér pláss.

Ath að þú bókar plássið með því smella hér, en þú borgar seinna.

Slökunarjóga | Selfossi

Eygló fór sjálf að stunda jóga árið 2008 og má segja að hún hafi kolfallið fyrir áhrifunum sem iðkunin hafði á hana. Strax í janúar 2009 hóf hún svo jógakennaranám hjá Guðjóni Bergmann með það að markmiði að dýpka eigin iðkun. Þó ætlunin hafi upphaflega ekki verið að leggja stund á jógakennslu í kjölfarið, þá hóf hún að kenna reglulega tíma snemma sama ár og með tímanum fór hún að kenna sína eigin tíma undir merkjum Yoga með Eygló. Eygló hefur því stundað jógakennslu frá 2009. Árið 2013 stofnaði hún svo Jakkafatajóga með það að markmiði að koma hreyfingu inn í daglega dagskrá almennings og þannig útrýma kyrrsetukvillum.