Mýkri mjaðmir á fimm mínútum

Mjaðmir eru sólin

Er þér stundum illt í mjóbakinu? En hálsi, eða hnjám?

Líkaminn er svo magnað fyrirbæri að verkur kemur sjaldnast fram þar sem orsök hans er. Verkir í mjóbaki geta því átt upptök sín í stífleika í mjöðm. Hér fyrir neðan eru útskýrðar nokkrar einfaldar æfingar og í vikunni setjum við svo einnig inn hagnýtt myndband inn á Facebook síðuna okkar.

 

Þetta þarf ekki að vera flókið til að virka, prófaðu sjálf/ur! Svona getum við hitað svæðið með einföldum hreyfingum:

  1. Í fyrsta lagi, stattu oftar upp! Flest sitjum við allt of lengi og það hefur ekki frábær áhrif á mjaðmir.
  2. Þegar þú gengur, taktu nokkur skref þar sem þú lyftir hnjánum hærra upp, þannig færðu kærkomna hreyfingu inn í nárasvæðið.
  3. Gerðu hnébeygju! Ef þú ert stíf/ur þá skaltu halda þér í borðið þitt svo þú missir ekki jafnvægið. Athugaðu hversu auðvelt (eða erfitt) það reynist að ná hælunum niður þegar þú ert í hnébeygjustöðunni. Flest erum við allt of stíf aftaná fótleggjum.
  4. Teygðu aftan á fótleggjum: Skrifstofu – útgáfa af hundi er svona: Stattu við borðið þitt og leggðu báða lófana ofan á borðið með rúmlega axlarbreidd á milli. Stígðu afturábak nokkur skref, nógu langt þangað til þú getur hallað búknum fram frá mjöðmum og leyft höfðinu að síga niður á milli lófanna. Mátaðu hvaða staða er best til að teygja aftan á fótum, þú getur beygt hnén og rétt úr þeim til skiptis. Finndu líka teygjuna á axlarsvæðinu.
  5. Mjaðma – hringir: Stattu upprétt/ur með rúmlega mjaðmabil á milli fóta. hreyfðu mjaðmir eins vel út í allar áttir og þú getur og myndaðu þannig stóra hringhreyfingu með mjöðmum. Passaðu að fara í báðar áttir!

Hvernig gengur?
Viltu meira af svona æfingum og betri kennslu? Hvernig væri að fá kennslu í einni hagnýtri jógaæfingu á dag í pósthólfið þitt? >>Smelltu hér til að lesa meira<<

Fylgstu svo endilega með Jakkafatajóga á Facebook, því í vikunni munum við setja inn myndband með fleiri æfingum sem eru hentugar fyrir axlir og allt þetta svæði.

Vissir þú að við bjóðum upp á svona einfalda jógatíma fyrir vinnustaði á vinnutíma? >>Sjáðu vörurnar okkar og verð hérna<< Við erum á nokkrum stöðum á landinu: Höfuðborgarsvæðinu Akranesi Akureyri Egilsstöðum >>Sendu okkur skilaboð hér<< til að fá okkur í heimsókn, þú getur bókað fyrsta tímann á kynningarverði.

Eygló fór sjálf að stunda jóga árið 2008 og má segja að hún hafi kolfallið fyrir áhrifunum sem iðkunin hafði á hana. Strax í janúar 2009 hóf hún svo jógakennaranám hjá Guðjóni Bergmann með það að markmiði að dýpka eigin iðkun. Þó ætlunin hafi upphaflega ekki verið að leggja stund á jógakennslu í kjölfarið, þá hóf hún að kenna reglulega tíma snemma sama ár og með tímanum fór hún að kenna sína eigin tíma undir merkjum Yoga með Eygló. Eygló hefur því stundað jógakennslu frá 2009. Árið 2013 stofnaði hún svo Jakkafatajóga með það að markmiði að koma hreyfingu inn í daglega dagskrá almennings og þannig útrýma kyrrsetukvillum.